Samningur Stétt Vest og MB vegna sálfræðiþjónustu endurnýjaður

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Þann 25. maí 2022 skrifuðu skólameistari Menntaskóla Borgarfjarðar og formaður Stéttarfélags Vesturlands, fyrir hönd Sjúkrasjóðs félagsins, undir samkomulag um stuðning við nemendur sem stunda nám í MB. Stuðningurinn er í  formi endurgreiðslu á sálfræðiþjónustu. Sjúkrasjóður Stéttarfélags Vesturlands hefur styrkt nemendur MB með þessum hætti síðustu sex skólaár og er samningurinn til tveggja ára og er hugsaður sem forvörn gegn brottfalli nemenda úr skóla.
Gegn tilvísun frá námsráðgjafa MB getur hver nemandi fengið endurgreiðslu eða styrk fyrir allt að fjórum sálfræðitímum á skólaári. Menntaskóli Borgarfjarðar greiðir fyrsta tímann en Sjúkrasjóður Stéttarfélags Vesturlands næstu þrjá tíma að hámarki. MB sér um að endurgreiða nemenda eða greiða sálfræðingi eftir því sem við á.

Stjórnvöld hafa verið með fögur fyrirheit um að hægt verði að sækja þónustu til sálfræðinga í gegnum sjúkratryggingar, en lítið heufr frést af fjármagni til þeirra mála. Meðan svo er gera forsvarsmenn Sjúkrasjóðs Stétt Vest ráð fyrir að bjóða nemendum MB þennan stuðning.

 

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei