Stjórnarkjör 2021

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Samkvæmt lögum Stéttarfélags Vesturlands ber að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu um kjör stjórnar. Þetta ár ber að kjósa í stjórn sem hér segir:

Til 2ja ára:formann, ritara og 1. meðstjórnanda..

Framboðslistum til stjórnarkjörs í Stéttarfélagi Vesturlands árið 2021, ásamt meðmælum a.m.k. 30 fullgildra félagsmanna, ber að skila á skrifstofu Stéttarfélags Vesturlands, Alþýðuhúsinu Sæunnargötu 2a, merkt formanni kjörstjórnar, Eygló Lind Egilsdóttur, fyrir kl. 16:00 þriðjudaginn 9. mars 2021.

Hvert það framboð er gilt sem fram kemur innan þess tíma og hefur skriflegt samþykki þeirra sem framboðslistann skipa.

Trúnaðarráð Stéttarfélags Vesturlands hefur ákveðið að leggja fram eftirfarandi lista vegna stjórnarkjörs 2021. –  Komi ekki fram fleiri listar teljast þeir sem trúnaðarráð hefur gert tillögu um sjálfkjörnir:

 

Formaður:Signý Jóhannesdóttir, Kvíaholti 3, 310 Borgarnesi, til 2ja ára

Ritari: Baldur Jónsson, Borgarbraut 37, 310-Borgarnesi, til 2ja ára

Fyrsti meðstj.: Jónína Heiðarsdóttir, Múlakoti, 311 Borgarnesi, til 2ja ára

 

Borgarnesi, 19. febrúar 2021

 

                                        Kjörstjórn Stéttarfélags Vesturlands

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei