Sumarúthlutun sumarið 2019 – áminning umsókn þarf að berast fyrir kl 10:00 15.apríl 2019

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Orlofshús 2019

Við munum opna fyrir umsóknir 15. mars kl 10:00 og úthluta 15. apríl kl.10:00. Allar umsóknir þurfa að fara í gegnum orlofsvefinn sem er hægt að nálgast hér
Eftir úthlutun þarf greiðsla að hafa borist fyrir 2.maí – sé umsókn ekki greidd er litið svo á að viðkomandi ætli ekki að nýta sér húsið.
Eftir 2.maí opnast fyrir fyrstur kemur fyrstur fær.

Nýjungar sumarið 2019 eru tvær en við höfum farið í makaskipti við 2 félög vegna húsanna okkar í Húsafelli.
Kiðárskógur 1 fer í skipti við Einarsstaði 12, hús sem Afl á, og er á Völlum Fljótdalshéraði. Þau skipti hefjast 14.júní.
Kiðárskógur 10 fer í skipti aðra hvora viku við Þverlág 6 á Flúðum, hús sem Báran á, og er fyrsta vikan okkar þar einnig 14.júní
Við vonum að þessar breytingar komi til með að nýtast okkar félagsmönnum vel.
Íbúðin í Reykjavík er eins og alltaf ekki með í sumarúthlutun en opnað verður fyrir sumarið þar fljótlega og kynnt sérstaklega með breyttum reglum.

Hér er hægt að kynna sér betur húsin http://orlof.is/stettvest/site/cottage/cottage_list.php

Verðskrá:

Húsafell, Kiðárskógur 1 vika á 20.000 ( ath. Kiðárskógur 1 er einungis til leigu fyrir okkar félasmenn til 14.júní í sumar)

Ölfusborgir vika á 20.000

Einarsstaðir vika á 20.000

Húsafell, Kiðárskógur 10 vika á 30.000

Ásatún Akureyri vika á 30.000

Þverlág 6 vika á 30.000

Ásholt Reykjavík vika á 35.000.-, helgi (fös til mán) 25.000 og nóttin er á 7000 en það er ekki hægt að taka staka nótt heldur er lágmark að taka 2 nætur.

**athugið nýtt í Reykjavík – íbúðin er leigð með þrifum en ekki er lengur hægt að fá leigð rúmföt **

 

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei