Staðan í kjarasamningunum Iðnsveinadeildar

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

 


 


Eftirfarandi skilaboð hafa komið frá Samiðn vegna stöðu mála hjá félagsmönnum Stéttarfélags Vesturlands sem tilheyra Samiðn: 


Föstudaginn 5. júní  var gert  samkomulag milli iðnaðarmannasamfélagsins og SA um samningsramman. Í samkomulagið tók til  launabreytinga, samningstíma og breytinga á kauptöxtum. Einnig var samkomulag um að fresta verkfalli sem átti að koma til framkvæmda 10. júní s.l til kl. 24.00 þann 22. júní.  Um þetta var engin ágreiningur milli iðnaðarmannafélaganna.


Samninganefnd Samiðnar var einróma sammála um að vinna á forsendum samkomulagsins og freista þessa að ljúka samningum á forsendum samkomulagsins og leggja  niðurstöðuna í dóm félagsmanna.


Samninganefndin hefur  unnið markvist að því að láta reyna á hvert hægt sé að ljúka samningi og niðurstaða lægi fyrir áður en til verkfall kæmi. Á fundi með SA í gærkveldi stóðu mál þannig að fyrir liggja drög að samningi og ef samkomulag næst um þau ágreinismál sem út af standa  er stefnt að því undirrita nýjan  kjarasamning á mánudag.


Engin ákvörðun hefur verið tekin um afboðun eða frestun verkfalls  sem hefst að öllu óbreyttu aðfaranótt  þann 23. júní.  



 

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei