Allsherjaratkvæðagreiðsla vegna fulltrúa á ársfund ASÍ

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Samkv. lögum Stéttarfélags Vesturlands skal viðhafa allsherjar-atkvæðagreiðslu við val fulltrúa á ársfund ASÍ. Félagið á rétt til að senda 4 fulltrúa á fundinn, sem fram fer á Nordica hóteli í Reykjavík dagana 22. og 23. okt. 2009.


Framboðslistum, þar sem tilgreindir eru 3 aðalfulltrúar frá SGS-deildunum og 1 frá LÍV-deild og jafnmargir varafulltrúar, ásamt tilskyldum fjölda meðmæla fullgildra félagsmanna, skal skila á skrifstofu Stéttarfélags Vesturlands Sæunnargötu 2a, Borgarnesi, stílað á formann kjörstjórnar, Svein G. Hálfdánarson, fyrir kl. 16.00 miðvikudaginn 30.sept. 2009.
 
      
      Borgarnesi, 17. sept. 2009


      Stéttarfélag Vesturlands
 


 

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei