Áríðandi fundur með starfsmönnum Norðuráls!

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Sameiginlegur fundur með félagsmönnum þeirra stéttarfélaga sem aðild eiga að kjarasamningnum við Norðurál, verður haldinn mánudaginn 29. mars kl. 20:30 íGamla Kaupfélaginu, Kirkjubraut 11, Akranesi.   Fundarefni: Staðan í kjaraviðræðunum.   Stéttarfélag Vesturlands skorar á félagsmenn sína að mæta á fundinn. Miðvikudaginn 31. mars, kl. 14:00 verður haldinn fundur í Borgarnesi, Sæunnargötu 2a,  um sama málefni fyrir þá sem ekki geta …

Allsherjaratkvæðagreiðsla um kjör stjórnar 2010

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Samkvæmt lögum Stéttarfélags Vesturlands ber að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu um kjör stjórnar. Þetta ár ber að kjósa í stjórn sem hér segir: Til 2ja ára:   varaformann, vararitara og 2. meðstjórnanda. Framboðslistum til stjórnarkjörs í Stéttarfélagi Vesturlands árið 2010, ásamt meðmælum a.m.k. 30 fullgildra félagsmanna, ber að skila til formanns kjörstjórnar, Sveins G. Hálfdánarsonar, Kveldúlfsgötu 16,  Borgarnesi, fyrir kl. 16:00 þriðjudaginn 6. apríl 2010. …

Atvinnulausir félagsmenn Stéttarfélagsins í heilsurækt

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Stéttarfélag Vesturlands og Borgarbyggð hafa gert með sér samkomulag um að atvinnulausir félagsmenn í Stéttarfélaginu fái aðgang að Íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi gegn mjög vægu gjaldi. Samkomulag þetta byggir á samkomulagi ASÍ og líkamsræktarstöðva um afslátt á mánaðarkortum til atvinnulausra félagsmanna stéttarfélaga. Félagsmaður í Stéttarfélagi  Vesturlands sem lætur draga félagsgjöld af atvinnuleysisbótum, greiðir kr. 500 fyrir mánaðarkortið og félagið  leggur kr. …

Miklar sveiflur á greiðslum sjúkradagpeninga milli ára

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Sjúkrasjóður Stéttarfélags Vesturlands greiðir félagsmönnum sínum dagpeninga vegna langvarandi veikinda, þegar greiðsluskyldu atvinnurekenda lýkur. Mjög erfitt er að spá fyrir um hversu háar upphæðir fara til þessa verkefnis. Oft hafa menn haldið því fram að tengsl séu milli greiðslubyrði úr sjúkrasjóðnum og atvinnuástands. Árið 2007 voru greiddar út rúmar sex milljónir króna, sem segja má að sé mjög lág upphæð …

Forvarnir í fyrirrúmi – Vinnuverndarráðstefna

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Þann 4. febrúar nk. verður haldin vinnuverndarráðstefna Vinnueftirlitsins og VÍS í aðalskrifstofu VÍS, á 5. hæð í Ármúla 3. Boðið verður upp á mörg áhugaverð erindi en aðgangur að ráðstefnunni er ókeypis. Skráning fer fram á heimasíðu VÍS, www.vis.is.   Opin ráðstefna VÍS og Vinnueftirlitsins 2010Forvarnir í fyrirrúmi   Tími: Fimmtudaginn 4. febrúar 2010, kl. 13:00 – 16:00 Staður: Aðalskrifstofa VÍS, Ármúli 3, 5. …

Starfsendurhæfingarráðgjafi kemur til starfa

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Stéttarfélögin á norðanverðu Vesturlandi hafa ráðið Helgu Karlsdóttur sem starfsendurhæfingarráðgjafa fyrir félagsmenn sína. Helga tilheyrir hópi að minnsta kosti 18 ráðgjafa sem ráðnir hafa verið af stéttarfélögum allt í kringum landið í samvinnu við Virk- starfsendurhæfingarsjóð. Hún mun hefja störf 1. febrúar nk. og verður aðalskrifstofa hennar hjá Stéttarfélagi Vesturlands, en hún mun fara um svæðið, sinna félagsmönnum og kynna …

Ertu með hugmynd í kollinum?

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Nú eru styrkir til atvinnu-mála kvenna lausir til umsóknar en það er Félags- og tryggingamálaráðherra sem veitir þá ár hvert. Að þessu sinni eru 30 milljónir til úthlutunar. Vinnumálastofnun hefur umsjón með styrkveitingunum og er umsóknarfrestur til og með 7.febrúar. Hægt er að sækja um styrki til gerðar viðskiptaáætlunar, til vöruþróunar, markaðsmála, vegna efniskostnaðar og hönnunar svo eitthvað sé nefnt. …

Sjóðfélagafundur Stafa lífeyrissjóðs í Borgarnesi

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Stafir lífeyrissjóður boðar til sjóðfélagafundar í sal Menntaskóla Borgarfjarðar, Borgarbraut 54 í Borgarnesi, fimmtudaginn 14. janúar 2010 kl. 20:00. Guðsteinn Einarsson varaformaður stjórnar Stafa lífeyrissjóðs og Ólafur Sigurðsson framkvæmdastjóri Stafa, fjalla um stöðu og starfssemi sjóðsins og svara fyrirspurnum. Sjóðfélagar eru hvattir til að fjölmenna á fundinn og kynna sér málefni sjóðsins.  

Atvinnumál á krepputímum – opinn fundur

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Atvinnumálanefnd ASÍ stendur fyrir opnum fundi um atvinnumál á krepputímum, miðvikudaginn 13. janúar, kl. 10:00-15:00 að Sætúni 1 Reykjavík – fundarsal Eflingar 4. hæð. Farið verður yfir reynsluna af núverandi vinnumarkaðsaðgerðum, hvað hefur tekist vel og hvað má betur fara. Einnig verður horft til framtíðar á þau tækifæri sem þar bíða. Fundurinn er opinn öllum þeim sem áhuga hafa. Opnir …

Greiðslur í fæðingarorlofi skerðast

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Nú um áramótin tóku gildi breytingar á lögum um fæðingarorlof. Breytingarnar fela í sér að hámark greiðslna úr Fæðingar-orlofssjóði til foreldris lækkar í 300.000 kr. á mánuði. Þá lækkar hlutfall greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði úr 80% í 75% vegna viðmiðunartekna umfram 200.000 kr. á mánuði. Breytingarnar eiga við vegna barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur eftir 1. …