Varst þú á staðnum?

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Á 100 ára afmæli Alþýðusambands Íslands (ASÍ) 12. mars 2016 framkvæmdu Lúðrasveit verkalýðsins, kvennakórarnir Hrynjandi og Katla auk meðlima í Karlakór Reykjavíkur magnaðan gjörning (Flash mob) og göngum Hörpunnar í Reykjavík. Alls tóku 160 manns þátt. Lagið sem þau fluttu var Maístjarnan eftir Jón Ásgeirsson við texta Halldórs Laxness. Fyrir þá sem misstu af er hægt að horfa  hér við mælum …

LANGAR ÞIG Í BÚSTAÐ Í SUMAR??

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Í dag 15.mars er opnað fyrir umsóknir um sumarorlofstímabil og stendur til og með 20.apríl nk. Í boði eru eins og áður tvö hús í Húsafelli Kiðárskógur 1 og Kiðárskógur 10, eitt hús í Ölfusborgum og ný glæsileg íbúð á Akureyri Ásatún 26.   Til að sækja um er félagsmönnum bent á nýja vefinn okkar http://orlof.is/stettvest/ eða skila til okkar umsóknareyðublaði sem má finna hér en …

Orlofshúsavefur

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Eins og sjá má á hnapp hér til hliðar hefur Stéttarfélag Vesturlands tekið inn nýjan orlofshúsavef og geta nú félagar sjálfir séð um að bóka á sig orlofshús eða íbúð. Til þess að skrá sig inn þarf viðkomandi félagsmaður að hafa íslykil eða rafræn skilríki en allar frekar leiðbeingar eru að finna á hnappnum fyrir neðan.   Við hvetjum félagsmenn eindregið til að nýta …

Styðjum aðgerðir Hlífar!

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Trúnaðarráð Stéttarfélags Vestulands lýsir yfir fullum stuðningi við verkfallsaðgerðir félagsmanna í Verkalýðsfélaginu Hlíf í Hafnarfirði, sem beinast að útskipun á áli frá Rio Tinto Alcan á Íslandi. Framkoma forsvarsmanna fyrirtækisins sem ganga í störf hafnarverkamanna, er fyrirtækinu til háðungar. Stéttarfélag Vesturlands skorar á Samtök atvinnulífsins að knýja  þetta aðildarfélag sitt til  að ganga til samninga við verkalýðsfélögin sem samið hafa …

ASÍ 100 ára !! Viltu koma á tónleika? (fréttatilkynning)

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Á hádegi í dag opnar fyrir miðapantanir á www.tix.is fyrir þá sem vilja koma og fagna með okkur þann 12.mars næstkomandi. Öllum félagsmönnum stendur til boða að fá miða á spennandi tónleikaveislu í Hörpunni. Í boði eru 6 miðar á mann en athugið að taka ekki fleiri miða en þið ætlið að nota. Allar frekari upplýsingar er hægt að nálgast …

Nýji kjarasamningurinn

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Í gær var samþykktur nýr kjarasamningur með miklum meirihluta eins og kemur fram í frétt hér til hliðar. Samningurinn flýtir launabreytingum og hækkar þær og gildir hann frá 1.janúar 2016 til 31.desember 2018.   Samninginn í heild sinni er hægt að sjá hérLaunataxta má sjá hér og kynningu má sjá hérEf eitthvað er óljóst hvetjum við fólk til að hafa …

Rúmlega 91% sögðu JÁ

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Sameiginlegri allsherjaratkvæðagreiðslu félagsmanna aðildarsamtaka ASÍ um kjarasamning milli aðildarsamtaka ASÍ og SA frá 21. janúar 2016 lauk kl. 12 á hádegi í dag. Já sögðu 9.274 eða 91,28%. Nei sögðu 832 eða 7,81%. Auðu skiluðu 97 eða 0,91%. Kjarasamningurinn var því samþykktur. Á kjörskrá voru 75.635. atkvæði greiddu 10.653 eða 14,08%.   

Nýtið kosningaréttinn!!

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Nú eru 2 dagar þar til kosningu lýkur – endilega nýtið kosningaréttinn kæru félagar, þið ættuð að hafa fengið sent lykilorði í pósti.   Þið getið kosið með því að ýta græna hnappinn hér til hægri   

Atkvæðagreiðsla hefst klukkan 8:00 á morgun 16.2.16

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Í dag ættu flestir að hafa fengið lykilorð sent í pósti sem hægt er að nota til að kjósa rafrænt. Við hvetjum alla sem ekki hafa fengið lykilorð á næstu dögum að hafa samband. Þeir sem hafa atkvæðarétt eru félagsmenn sem fá greidd laun eftir almennum kjarasamningum við SA, fyrir verkafólk, verslunar og skrifstofufólk og iðnaðarmenn. Hægt er að sjá …