Eins og fram hefur komið áður var kjarasamningur Elkem Ísland felldur ekki alls fyrir löngu. Var aftur komið saman að borðum og undirritaður svo nýr samningur þann 11. apríl sl. Þær breytingar urðu frá fyrri samning að dagmenn eru að fá 0,11% viðbót við sínar launabreytingar og hjá vaktmönnum náðist samkomulag um svokallaða rauða daga sem falla frá mánudegi til …
Kjarasamningur við Norðurál undirritaður
Nýr kjarasamningur við Norðurál var undirritaður í húsakynnum ríkissáttasemjara í gær. Hækkun á fyrri taxta nemur 6,15% frá 1. janúar 2025 sem og orlofs- og desemberuppbætur. Samningurinn gildir í 5 ár, fyrsta árið tekur til fyrrgreindar hækkunar og munu laun svo hækka samkvæmt 95% af launavísitölu Hagstofu Íslands sem og aðrir kjaraliðir næstu fjögur ár samningsins. Orlofs- og desemberuppbætur munu …
Leiga á sumarhúsum fyrir sumarið 2025 með breyttu sniði – engin úthlutun!
Því miður er nýja fína kerfið okkar að stríða okkur varðandi sumarúthlutun og því verðum við að breyta aðeins til, einungis þetta sumar 2025, á næsta ári förum við aftur í gömlu góðu úthlutunina. Sunnudaginn 13.apríl kl 12:00 á hádegi munum við opna fyrir leigu fyrir sumarið 2025 og þá gildir fyrstur kemur fyrstur fær og engir punktar verða dregnir …
Aprílgabb
Frétt á heimasíðu Stéttarfélags Vesturlands frá því í gær um nýtt orlofshús félagsins á Spáni var full ýkt, eða uppspuni frá rótum öllu heldur. Um aprílgabb var að ræða. Starfsfólk StéttVest fengu nokkur símtöl og skilaboð um hinn nýja orlofskost en engin kom þó á skrifstofu félagsins í gær til að spyrja. Má því segja að félagsmenn hafi séð við …
Lágmarkskauptaxtar hækka 1. apríl
Í kjarasamningum á almennum vinnumarkaði sem undirritaðir voru 7. mars 2024 var samið um kauptaxtaauka sem felur í sér að hækki launavísitala á almennum vinnumarkaði umfram umsamdar taxtahækkanir, hækka allir lágmarkskauptaxtar um sama hlutfall frá 1. apríl ár hvert. Sérstök launa- og forsendunefnd kjarasamninga á almennum vinnumarkaði, sem skipuð er fulltrúum frá ASÍ og SA, kom saman til fyrsta fundar …
Kjarasamningur við Elkem Ísland felldur í kosningu
Nýr kjarasamningur Stéttarfélags Vesturlands og fleiri félaga við Elkem Ísland var felldur í atkvæðagreiðslu sem lauk í hádeginu í dag. Á kjörskrá voru 151 og var kjörsókn 77,48%. Voru úrslit sem hér segir: Nei sögðu 68 eða 58,12% Já sögðu 45 eða 38,46% Þeir sem ekki tóku afstöðu voru 4 eða 3,42% Unnið er að því að ákvarða næstu skref. Mikilvægt er að greina í hverju óánægjan er fólgin og athuga …
Styrkir sem laun í skattframtali 2024
Sú leiðinlega villa varð við útkeyrslu gagna úr bókhaldskerfi Stéttarfélags Vesturlands að allir styrkir sem veittir voru á árinu 2024 til félagsmanna skráðust sem launatekjur inn á skattframtal þeirra. Styrkir frá stéttarfélögum eiga að fara í lið 2.3 í reit 96 á tekjublaði einstaklings og eru skattskyldir. Sjúkradagpeningar sem og greiðslur úr félagsmannasjóði eru ekki styrkir og eiga að færast …
Skrifað undir nýjan kjarasamning við Elkem Ísland
Skrifað var undir nýjan kjarasmaning við Elkem Ísland nýverið. Umræður gengu í þónokkurn tíma og gekk erfiðlega að ná saman kjarasamningi á tímabili en hefur nú tekist. Samningurinn gildir í fjögur ár og er fyrsta árið í anda þess sem samið var um á hinum almenna vinnumarkaði en mun taka svo breytingum með tengingu við launavísitölu líkt og kjarasmaningar stóriðjunnar …
Stjórnarkjör 2025
Ekki bárust nein mótframboð við lista trúnaðarráðs og telst því listinn sjálfkjörinn Eftirtaldir aðilar voru í framboði: Formaður: Silja Eyrún Steingrímsdóttir, Þórólfsgötu 21a, 310 Borgarnesi Ritari: Einar Reynisson, Sóltúni 7, 311 Hvanneyri 1.meðstj.: Hafþór Ingi Gunnarsson, Egilsgötu 8, 310 Borgarnesi, Borgarnesi, 10.mars 2025 Kjörstjórn Stéttarfélags Vesturlands
Stjórnarkjör 2025
Stjórnarkjör 2025 Samkvæmt lögum Stéttarfélags Vesturlands ber að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu um kjör stjórnar. Þetta ár ber að kjósa í stjórn sem hér segir: Til 2ja ára: Formann, ritara og 1. meðstjórnanda. Framboðslistum til stjórnarkjörs í Stéttarfélagi Vesturlands árið 2025, ásamt meðmælum a.m.k. 30 fullgildra félagsmanna, ber að skila á skrifstofu Stéttarfélags Vesturlands, Alþýðuhúsinu Sæunnargötu 2a, merkt kjörstjórn, fyrir kl. …