Sumarúthlutun opnast næst 23.maí nk.

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Þann 20.apríl sl. var síðasti umsóknardagur til að sækja um orlofshús/íbúð í fyrstu og annari úthlutun fyrir sumarið 2016. Næst opnast fyrir umsóknir þann 23.maí nk. en þá verða auglýstar vikur sem ekki gengu út í fyrstu og annari úthlutun.   Þá gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær – endilega fylgist með.    

Síðasti dagur til að sækja um sumarúthlutun er Á MORGUN

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Á morgun 20.apríl er síðasti dagur til að sækja um sumarúthlutun – Hægt er að sækja um með því að ýta á bláa hnappinn hér til hliðar eða skila umsóknarblaði sem fylgdi Félagsfréttum sem komu út í byrjun apríl sl.    

Laust í Húsafelli

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Við vekjum athygli félagsmanna á því bæði húsin í Húsafelli eru laus helgina 15-17 apríl – um að gera að skella sér í smá afslöppun. Það er voðalega notalegt að vera í Húsafelli þegar vorið er að koma 🙂   Einnig eru lausar helgar í Ölfusborgum í apríl.   Til að bóka er hægt að fara hingað inn www.orlof.is/stettvest eða ýta …

EINN RÉTTUR EKKERT SVINDL

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Veistu um fyrirtæki sem brjóta á ungu fólki eða erlendum starfsmönnum og nýta sér þekkingarleysi þeirra á réttindum sínum? Taktu þátt í átaki ASÍ – deilum reynslu okkar með myllumerkinu #EkkertSvindl og upprætum svindlið! Frekari upplýsingar má finna hér  

Laust í Kiðárskógi 10 um páskana

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Langar þig í bústað um páskana? Kiðárskógur 10 var að losna og gildir fyrstur kemur fyrstur fær.   Til að bóka er hægt að smella á bláa hnappinn hér til hliðar eða fara inn hér.   Einnig bendum við á að það er laust í Ölfusborgum nær allar helgar í apríl – um að gera að skella sér í smá afslöppun …

Varst þú á staðnum?

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Á 100 ára afmæli Alþýðusambands Íslands (ASÍ) 12. mars 2016 framkvæmdu Lúðrasveit verkalýðsins, kvennakórarnir Hrynjandi og Katla auk meðlima í Karlakór Reykjavíkur magnaðan gjörning (Flash mob) og göngum Hörpunnar í Reykjavík. Alls tóku 160 manns þátt. Lagið sem þau fluttu var Maístjarnan eftir Jón Ásgeirsson við texta Halldórs Laxness. Fyrir þá sem misstu af er hægt að horfa  hér við mælum …

LANGAR ÞIG Í BÚSTAÐ Í SUMAR??

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Í dag 15.mars er opnað fyrir umsóknir um sumarorlofstímabil og stendur til og með 20.apríl nk. Í boði eru eins og áður tvö hús í Húsafelli Kiðárskógur 1 og Kiðárskógur 10, eitt hús í Ölfusborgum og ný glæsileg íbúð á Akureyri Ásatún 26.   Til að sækja um er félagsmönnum bent á nýja vefinn okkar http://orlof.is/stettvest/ eða skila til okkar umsóknareyðublaði sem má finna hér en …

Orlofshúsavefur

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Eins og sjá má á hnapp hér til hliðar hefur Stéttarfélag Vesturlands tekið inn nýjan orlofshúsavef og geta nú félagar sjálfir séð um að bóka á sig orlofshús eða íbúð. Til þess að skrá sig inn þarf viðkomandi félagsmaður að hafa íslykil eða rafræn skilríki en allar frekar leiðbeingar eru að finna á hnappnum fyrir neðan.   Við hvetjum félagsmenn eindregið til að nýta …

Styðjum aðgerðir Hlífar!

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Trúnaðarráð Stéttarfélags Vestulands lýsir yfir fullum stuðningi við verkfallsaðgerðir félagsmanna í Verkalýðsfélaginu Hlíf í Hafnarfirði, sem beinast að útskipun á áli frá Rio Tinto Alcan á Íslandi. Framkoma forsvarsmanna fyrirtækisins sem ganga í störf hafnarverkamanna, er fyrirtækinu til háðungar. Stéttarfélag Vesturlands skorar á Samtök atvinnulífsins að knýja  þetta aðildarfélag sitt til  að ganga til samninga við verkalýðsfélögin sem samið hafa …

ASÍ 100 ára !! Viltu koma á tónleika? (fréttatilkynning)

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Á hádegi í dag opnar fyrir miðapantanir á www.tix.is fyrir þá sem vilja koma og fagna með okkur þann 12.mars næstkomandi. Öllum félagsmönnum stendur til boða að fá miða á spennandi tónleikaveislu í Hörpunni. Í boði eru 6 miðar á mann en athugið að taka ekki fleiri miða en þið ætlið að nota. Allar frekari upplýsingar er hægt að nálgast …