Viljum styðja lestrarkennslu á fyrsta skólastigi

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Stéttarfélag Vesturlands hélt 50. fund stjórnar félagsins þriðjudaginn 15. nóv. á fundinum var samþykkt eftirfarandi tillaga: “  50. fundur stjórnar Stéttarfélags Vesturlands haldinn þriðjudaginn 15. nóvember 2011, í fundarsal félagsins í Alþýðuhúsinu, Sæunnargötu 2a í Borgarnesi, samþykkir að veita styrki til þeirra leikskóla sem starfa á félagssvæðinu. Styrkirnir nemi kr. 60.000.- til hvers skóla og skal nota til kaupa á …

Bætt réttarstaða starfsmanna við aðilaskipti

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Þessi frétt er tekin af vef ASÍ og birtist þar í fréttabréfi októbermánaðar:   Bætt réttarstaða launafólks við aðilaskipti Í kjölfar hrunsins 2008 fóru fjölmörg fyrirtæki í gjaldþrot og var rekstur þeirra eftir það seldur af skiptastjórum þeirra, ýmist í heilu lagi eða hlutum, til nýrra aðila sem héldu áfram rekstri með sama starfsfólki. Í mörgum tilvikum glataði launafólk verulegum …

Ályktun SGS um málefni heimilanna

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Eftirfarandi ályktun var samþykkt á 3ja þingi SGS þann 14. okt. sl.:   Þing Starfsgreinasambands Íslands lýsir þungum áhyggjum yfir erfiðri stöðu heimila í landinu. Háir vextir, mikil verðbólga, fall krónunnar, og atvinnuleysi hafa skilið fjölmargar fjölskyldur og einstaklinga eftir á barmi eignamissis og gjaldþrots, auk þeirra sem nú þegar hafa misst allt sitt. Fjármálastofnanir verða að axla sína ábyrgð …

Lítið bókað í Ölfusborgum – önnur helgi laus í Húsafelli

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

BÚIÐ AÐ LEIGJA BÁÐAR VIKURNAR! Komandi helgi, 14. -16. október er laus í Ölfusborgum og lítið er bókað þar á næstunni. Staðan er önnur hvað varðar sumarbústað félagsins í Húsafelli, þar er laust 21. -23. október og síðan er bókað fram í desember og um áramótin. Orlofsíbúðin í Ásholti 2 í Reykjavík nýtur einnig mikilla vinsælda og þar eru félagsmenn farnir að …

Nýr eftirlitsfulltrúi ráðinn til starfa

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

 Stéttarfélag Vesturlands og Verkalýðsfélag Snæfellinga réðu síðastliðið vor til sín eftirlitsfulltrúa til að hafa eftirlit með vinnustaðaskírteinum og hóf hann störf 15. apríl.Vinnustaðaskírteinum er ætlað að vinna gegn svartri atvinnustarfsemi og undirboðum á vinnumarkaði en mikilvægt er að öll fyrirtæki sitji við sama borð og fylgi settum reglum.Hlutverk eftirlitsfulltrúans verður að fylgjast með því að vinnustaðaskírteini hafi verið gefin út …

Viðaukinn við kjarasamning Norðuráls og stéttarfélaganna 5, samþykktur

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Um hádegi í dag 3. október lauk atkvæðagreiðslu um viðauka við kjarasamning Norðuráls við Stéttarfélag Vesturlands, FIT, RSÍ, VR og Verkalýðsfélag Akraness, frá 19. apríl 2010. Viðaukinn var undirritaður 23. september sl. og fjallaði um launalið samningsins og einnig um væntanlegan stóriðjuskóla. Kosningaþátttakan var 72.24%, já sögðu 297 eða 68%, nei sögu 129 eða 31%, auðir og ógildir voru 6 …

Kynningarfundir vegna samninga við Norðurál

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Stéttarfélag Vesturlands stendur fyrir kynningarfundum að Sæunnargötu 2a í Borgarnesi vegna viðauka við kjarasamninginn við Norðurál, sem undirritaður var sl. föstudag. Um er að ræða tvo fundi, sá fyrri kl. 20:15 miðvikudaginn 28. sept. og sá síðari kl. 16:00 föstudaginn 30. sept. Hægt verður að greiða atkvæði að fundum afloknum. Starfsmenn Norðuráls eru hvattir til að fjölmenna á fundina. Einnig …

Stéttarfélögin fimm semja við Norðurál

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Stéttarfélag Vesturlands, ásamt Fit, VR, RSÍ og Vlfa,  skrifuðu undir samkomulag um launalið kjarasamningsins við Norðurál í dag, 23. september. Um er að ræða viðauka við kjarasamning þessara aðila frá 19. apríl 2010. Verði viðaukinn samþykktur, þá munu laun starfsmanna Norðuráls hækka frá og með 1. janúar 2011 um 5,35% og aftur 1. desember 2011  um 5,35%. Næsta hækkun kemur svo 1. janúar …

Fjölskyldudagur Stéttarfélags Vesturlands

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Við minnum á fjölskyldudaginn sem fyrirhugaður er fyrir félagsmenn Stéttarfélags Vesturlands og fjölskyldur þeirra. Við höfum framlengt skráningarfrestinn til kl. 16:00 á föstudag. Smellið á myndina til að sjá nánar um ferðina og hvað verður í boði.  

Vegna yfirvofandi verkfalls Félags Leikskólakennara

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Eins og væntanlega hefur ekki farið fram hjá neinum hefur Félag Leikskólakennara boðað verkfall frá og með 22. ágúst nk. hafi samningar ekki náðst fyrir þann tíma. Þar sem nokkrir félagsmenn í opinberu deild Stéttarfélags Vesturlands starfa við hliðina á leikskólakennurum, sem hugsanlega fara í verkfall, er nauðsynlegt að hafa í huga hvað gæti talist verkfallsbrot, þ.e.a.s. verði túlkað þannig að …