Íbúðin í Furulundi 8 laus vikuna 12.-19. ágúst

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Af ófyrirsjáanlegum orsökum var íbúðin í Furulundi 8 á Akureyri að losna vikuna frá 12. til 19. ágúst. Hafið samband við skrifstofu Stéttvest ef áhugi er fyrir hendi í síma 430 0430 eða með tölvupósti á stettvest@stettvest.is   Fyrstur kemur fyrstur fær!   

Lausar vikur í orlofshúsum og orlofsávísanir

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Nokkrar vikur eru enn lausar í orlofshúsum og íbúðum Stéttarfélagsins. Til að sjá lausar vikur smellið hér. Til að festa sér viku þarf að hafa samband við skrifstofu félagsins í s. 430 0430 eða senda tölvupóst á stettvest@stettvest.is   Einnig eru enn til 23 orlofsávísanir með Icelandair. Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Stéttarfélagsins til að panta þær. Síminn er 430 0430 eða sendið …

Opnunartími skrifstofa Stéttarfélagsins í júlí

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Skrifstofan í Hvalfjarðarsveit verður lokuð í júlí vegna sumarleyfa starfsfólks Stéttarfélagsins.   Skrifstofan í Búðardal, sem er opin annan hvern fimmtudag, verður lokuð þann 7. júlí en næsti opnunardagur verður 21. júlí frá kl. 9:30 til 12:30.   Við biðjumst velvirðingar á óþægindum sem þetta gæti valdið. Við bendum á að skrifstofan í Borgarnesi er opin alla virka daga frá kl. 8:00 til 16:00. Síminn …

Kjaraviðræður við sveitarfélögin í hörðum hnút

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Þann 9. júní sl. slitnaði upp úr viðræðum SGS og Flóafélaganna við Samninganefnd sambands íslenskra sveitarfélaga. Viðræður hafa staðið með hléum síðan um áramót. Samningarnir runnu út 30. nóvember 2010 og lagði SGS fram kröfur sínar þann 7. desember. Ein af ástæðunum fyrir því að samningar hafa dregist er að beðið var eftir því að samið yrði á almenna vinnumarkaðnum. …

Ríkið og SGS semja á sömu nótum og aðrir!

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

 Samninganefnd Starfsgreinasambandsis fyrir hönd aðildarfélaga og fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs skrifuðu undir kjarasamninga miðvikudaginn 1. júní.   Samninganefndin er mjög sátt með að hafa náð að tryggja fólki þær launahækkanir sem samið var um á almenna markaðnum.   Vert er að vekja athygli á því að samningurinn er tveimur mánuðum lengri en kjarasamningur SGS við SA en hann rennur út …

Kjarasamningar samþykktir með 90% atkvæða!

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Á kjörskrá hjá Stéttarfélagi Vesturlands voru 485 vegna atkvæðagreiðslu um kjarasamninga ASÍ og landssambanda þess við SA frá 5. maí 2011. Alls kaus 161 félagsmaður eða 33.2 %. Hjá Iðnsveinadeild var 31 á kjörskrá, 11 kusu eða 35,5%, allir 11 sögðu já eða 100%Hjá Deild verslunarmanna voru 126 á kjörskrá, 45 kusu eða 35,7%, já sögðu 41 eða 93,2%,, 3 sögðu nei …

Póstatkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Stjórn Stéttarfélags Vesturlands hefur tekið ákvörðun um að viðhafa póstatkvæðagreiðslu um kjarasamninga LÍV, Samiðnar og SGS sem undirritaðir voru þann 5. maí síðastliðinn. Kjörgögn hafa verið sett í póst til þeirra félagsmanna sem eru á kjörskrá Stéttarfélags Vesturlands. Allir sem vinna eftir umræddum samningum og eiga aðild að Stéttarfélagi Vesturlands eiga rétt á að greiða atkvæði um samninginn. Akvæði þurfa …

Um 200 manns mættu á hátíðahöld í Borgarnesi

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

1. maí hátíðin á Hótel Borgarnesi gekk með ágætum og mættu um 200 manns á hátíðina. Ræðumaður dagsins var Árni Stefán Jónsson varaformaður BSRB og formaður SFR, stéttarfélags í almannaþjónustu. Hægt er að nálgast ræðuna hans hér. Signý Jóhannesdóttir formaður Stéttarfélags Vesturlands og varaforseti ASÍ hélt ræðu sína á Austurvelli í ár, við heldur leiðinlegri aðstæður en ríktu í Borgarnesi, en ræðuna …

Fimm félög sömdu við Elkem Ísland ehf

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Stéttarfélag Vesturlands, Félag iðn- og tæknigreina, VR, Rafiðnaðarsambandið og Verkalýðsfélag Akraness skrifuðu undir kjarasamning við Elkem Ísland ehf  þann 19. apríl. Gildistími samningsins er þrjú ár og einn mánuður. Hækkun grunnlauna er afturvirk frá 1. janúar 2011 og samningurinn rennur út 31. janúar 2014. Grunntaxtar  samningsins hækka um 5,5% þannig að lægsti taxti samningsins fer úr kr. 184.465 í kr. …