Ályktun frá stjórnarfundi: Verjum áunnin réttindi

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

  Eftirfarandi samþykkt var gerð á fundi stjórnar Stéttarfélags Vesturlands, Sæunnargötu 2 í Borgarnesi 7. desember 2009:   Stjórn Stéttarfélags Vesturlands skorar á félagsmálaráðherra að draga til baka frumvörp til laga um breytingar á atvinnuleysistryggingum og fæðingarorlofi sem hann hefur lagt fram. Vandi atvinnuleysistryggingasjóðs er ekki skortur á lagaúrræðum heldur skortur á fjármunum og starfsfólki til að fylgja gildandi lögunum …

Stéttarfélag Vesturlands stækkar húsakynni sín

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Þrátt fyrir að Alþýðuhúsið sem stendur við Sæunnargötu 2a í Borgarnesi sé ekki gamalt, þá hefur starfsemi félagsins þegar sprengt utan af sér. Ekki eru liðin 5 ár síðan flutt var í húsið, en síðan þá hefur orðið sameining þriggja stéttarfélaga, auk þess sem verkefnum hefur fjölgað. Segja má að þegar ráðist var í byggingu hússins hafi full mikils aðhalds …

Vetrarleigan 2009-2010

Stéttarfélag Vesturlands Tilkynningar

Vetrarleigan 2009-2010 Viltu gera þér glaðan dag í orlofshúsi eða íbúð? Kynntu þér kostina sem við bjóðum þér í vetur!    

¨”Vakna þú mín þyrnirós¨” Hættið að tala – framkvæmið!

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Ályktun stjórnar Stéttarfélags Vesturlands. 28. sept. 2009.-   Stjórn Stéttarfélags Vesturlands lýsir yfir áhyggjum af aðgerðarleysi stjórnvalda í efnahags- og atvinnumálum. Eilífar illdeilur um keisarans skegg, hvort sem eru innan ríkisstjórnar eða við stjórnarandstöðuna skila engum árangri, draga mátt úr þjóðinni og koma í veg fyrir að menn snúi sér að brýnni verkefnum. Ríkistjórnin þarf að láta verkin tala og …

Allsherjaratkvæðagreiðsla vegna fulltrúa á ársfund ASÍ

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Samkv. lögum Stéttarfélags Vesturlands skal viðhafa allsherjar-atkvæðagreiðslu við val fulltrúa á ársfund ASÍ. Félagið á rétt til að senda 4 fulltrúa á fundinn, sem fram fer á Nordica hóteli í Reykjavík dagana 22. og 23. okt. 2009. Framboðslistum, þar sem tilgreindir eru 3 aðalfulltrúar frá SGS-deildunum og 1 frá LÍV-deild og jafnmargir varafulltrúar, ásamt tilskyldum fjölda meðmæla fullgildra félagsmanna, skal …

Atkvæðagreiðslu lýkur föstudaginn 7. ágúst

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Nú stendur yfir póstatkvæða-greiðsla vegna kjarasamninga við ríkið og sveitarfélögin. Póstleggja þarf atkvæðaseðla í síðasta lagi 7. ágúst til að þeir nái örugglega í talningu sem fer fram þann 14. ágúst á skrifstofu Starfsgreinasambands Íslands. Stéttarfélag Vesturlands hvetur félagsmenn sína að nýta sér atkvæðisrétt sinn.  Á meðfylgjandi mynd eru Gunnar Björnsson formaður samninganefndar ríkisins og Signý Jóhannesdóttir formaður Stétt Vest og …

Vetrarleigan hefst í orlofshúsunum 4. sept.

Stéttarfélag Vesturlands Tilkynningar

Frá 4. sept. er hægt að leigja staka daga eða helgar í orlofshúsum og íbúðum Stéttarfélags Vesturlands.  Frá 4. sept. er hægt að leigja staka daga eða helgar í orlofshúsum og íbúðum Stéttarfélags Vesturlands. Félagið sér sjálft um að leigja íbúðirnar á Akureyri og í Reykjavík, eins sumarbústaðina í Ölfusborgum og í Húsafelli. Illugastaðir eru leigðir af umsjónamanni orlofsbyggðarinnar þar. 

Samninganefnd ASÍ staðfestir endurskoðun kjarasamninga

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Þessi frétt er tekin af vef ASÍ:   13. júlí 2009Fulltrúar landssambanda og félaga með beina aðild að ASÍ hafa í dag tekið afstöðu til samkomulags ASÍ og SA frá 25. júní s.l. eftir að hafa leitað eftir afstöðu samninganefnda sinna aðildarfélaga. Í ljós hefur komið að víðtæk samstaða er innan Alþýðusambands Íslands um bæði niðurstöðu samningsaðila sem og gerð …

Kjarasamningum við ríki og sveitarfélög lokið

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Starfsgreina- samband Íslands hefur skrifað undir kjarasamninga bæði við ríkið fyrir hönd fjármálaráðherra og við Launanefnd sveitarfélaga fyrir hönd 76 sveitarfélaga. Samningurinn við ríkið kláraðist að kvöldi 3. júlí og það var rétt fyrir kl. 19:00 þriðjudaginn 7. júlí sem skrifað var undir við Launanefnd sveitarfélaga. Báða samningana er hægt að nálgast á heimasíðu www.sgs.is .  Formaður Stéttarfélags Vesturlands er sviðstjóri sviðs opinberra starfsmanna …

Fundur stjórar- trúnaðaráðs og trúnaðarmanna

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

  Stjórn Stéttarfélags Vesturlands hefur ákveðið að boða ofangreinda aðila til fundar þriðjudaginn 7. júlí kl. 20:00, í Sæunnargötu 2a. Á fundinum mun Ólafur Darri Andrason kynna niðurstöður varðandi samkomulag um frestun á endurskoðun kjarasamninga ASÍ og SA, ásamt svokölluðum stöðugleikasáttmála. Stjórnin leggur til að afstaða Stétt Vest verði tekin á fundinum. Kjarasamningar við ríki og sveitarfélög verða kynntir, verði …