Við vekjum athygli á að styrkir Starfsmenntastjóðs verslunar og skrifstofufólks voru hækkaðir um áramót og má sjá betur hér
Hækkun er á styrkjum til félagsmanna SVS og fyrirtækja. Veittur er hámarksstyrkur allt að 130.000 kr. á ári.
90% af námi/starfstengdu námskeiðsgjaldi/ráðstefnugjaldi – hámark 130 þúsund.
50% af tómstund – hámark 30 þúsund (dregst frá hámarksstyrk).
50% af ferðastyrk vegna náms – hámark 40 þúsund (dregst frá hámarksstyrk).
Skilyrði fyrir styrkveitingu er að félagsmaður greiði námsgjöld/námskeiðsgjöld/ráðstefnugjöld.
Uppsöfnun einstaklinga til þriggja ára verður því 390 þúsund fyrir einu samfelldu námi.
Veittir fyrirtækjastyrkir hafa að auki hækkað í samræmi við styrki til einstaklinga.