Skrifstofa Stéttarfélags Vesturlands verður lokuð vegna sumarleyfa frá og með föstudeginum 29. júlí til og með föstudagsins 5. ágúst. Opnað verður aftur kl. 08:00 mánudaginn 8. ágúst.
Sjúkradagpeningar verða greiddir föstudaginn 29. júlí en öll vottorð og gögn vegna umsókna verða að berast í síðasta lagi fyrir kl. 15:00 föstudaginn 22. júlí.
Styrkir úr Sjúkrasjóði, Fræðslusjóðum og Orlofssjóði voru greiddir 1. júlí og verða greiddir næst 15. júlí.
Umsóknir sem berast eftir 14. júlí verða greiddar 12. ágúst.
Ef mál þola ekki bið má hafa samband við formann í síma 8949804
Félagsmönnum er bent á heimasíðu félagsins ef leita þarf upplýsinga um kjaramál.
Á vinnuréttarvef ASÍ og heimasíðum landssambandanna(SGS, Samiðnar og LÍV) má einnig finna ýmsar gagnlegar upplýsingar.
Starfsmenn