Lokað vegna sumarleyfa 29.júlí – 5.ágúst

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Skrifstofa Stéttarfélags Vesturlands verður lokuð vegna sumarleyfa frá og með föstudeginum  29. júlí til og með föstudagsins 5. ágúst. Opnað verður aftur kl. 08:00 mánudaginn 8. ágúst.

Sjúkradagpeningar verða greiddir föstudaginn 29. júlí en öll vottorð og gögn vegna umsókna verða að berast í síðasta lagi fyrir kl. 15:00 föstudaginn 22. júlí.

Styrkir úr Sjúkrasjóði, Fræðslusjóðum og Orlofssjóði voru greiddir 1. júlí og verða greiddir næst 15. júlí.

Umsóknir sem berast eftir 14. júlí verða greiddar 12. ágúst.

 

Ef mál þola ekki bið má hafa samband við formann í síma 8949804

 

Félagsmönnum er bent á heimasíðu félagsins ef leita þarf upplýsinga um kjaramál.

Á vinnuréttarvef ASÍ og  heimasíðum landssambandanna(SGS, Samiðnar og LÍV) má einnig  finna ýmsar gagnlegar upplýsingar.

Starfsmenn

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei