Samningur 17 SGS félaga við sveitarfélögin samþykktur Niðurstöður atkvæðagreiðslu um nýjan kjarasamning 17 aðildarfélaga Starfsgreinasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir starfsmenn sveitarfélaga liggja nú fyrir og var samningurinn samþykktur með miklum meirihluta. Starfsgreinasambandið hélt utan um sameiginlega rafræna atkvæðagreiðslu meðal 16 félaga um nýjan samning, en AFL Starfsgreinafélag sá sjálft um sína atkvæðagreiðslu. Atkvæðagreiðslan stóð yfir á tímabilinu 3. …
Launagreiðendur athugið
Launagreiðendur athugið (tekið af vef rsk.is) Með lögum nr. 140/2019, um skráningu einstaklinga, var m.a. gerð sú breyting að launagreiðendur geta ekki lengur sótt um kennitölur beint til Þjóðskrár Íslands fyrir þá erlendu ríkisborgara sem hjá þeim starfa. Samhliða skráningu í utangarðsskrá eru nú gefnar út kerfiskennitölur sem gefnar eru út fyrir milligöngu opinberra aðila vegna einstaklinga sem ekki þurfa …
Rafræn kosning um nýjan kjarasamning við sveitarfélögin og fyrir Brákarhlíð 3.-9. feb.
Rafræn atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning milli Starfsgreinasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga hefst í dag kl. 12:00 og stendur til kl. 12:00 sunnudaginn 9. febrúar. Sama á við fyrir starfsfólk Brákarhlíðar. Félagsmenn eru hvattir til að kynna sér vel innihalds samningsins og nýta atkvæðisrétt sinn. 📣Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar verða kynntar mánudaginn 10. febrúar Hér má sjá frekari upplýsingar um samninginn
Til launagreiðenda á félagssvæði Stéttarfélags Vesturlands
Eindagi vegna desember 2019 er 31.janúar 2020. Þeir launagreiðendur sem skulda eldri iðgjöld eru hvattir til að gera skil hið fyrsta til að komast hjá kostnaðarsömum innheimtugerðum Stéttarfélag Vesturlands
Kynningarfundir
Kynningarfundir vegna kjarasamnings Stéttarfélags Vesturlands við Samtök sveitarfélaga sem undirritaður var 16. janúar. Samningurinn nær til þeirra félagsmanna í Stéttarfélagi Vesturlands sem starfa hjá Hvalfjarðarsveit, Borgarbyggð, Eyja- og Miklaholtshreppi og Dalabyggð, sem og til þeirra félagsmanna sem starfa á Brákarhlíð. Fundirnir verða sem hér segir: Í Alþýðuhúsinu í Borgarnesi þriðjudaginn 28. jan. kl. 17:00 Í samkomusalnum í Brákarhlíð miðvikudaginn 29. …
Starfsgreinasamband Íslands og sveitarfélögin skrifa undir kjarasamning
Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands, fyrir hönd 17 aðildarfélaga sinna, skrifaði í dag undir nýjan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga með fyrirvara um samþykki félagsmanna í atkvæðagreiðslu. Samningurinn gildir frá 1. janúar 2020 til 30. september 2023. Helstu atriði samningsins eru sem hér segir: Laun hækka um 90.000 kr. á tímabilinu 1. janúar 2020 til 1. janúar 2022. Þann 1. janúar 2023 …
Hækkun á hámarki einstaklingsstyrkja
Hækkun á hámarki einstaklingsstyrkja Stjórnir sjóðanna Landsmenntar, Sjómenntar, Ríkismenntar og Sveitamenntar samþykktu nú í desember að hækka hámark einstaklingsstyrkja úr 100 þúsund í 130 þúsund. Samþykkt er að hækka um næstu áramót hámark einstaklingsstyrkja í kr. 130.000.- þar með hækkar einnig hámark á uppsöfnuðum rétti til styrks í kr. 390.000.- Hækkunin tekur gildi f.o.m. 1.janúar 2020 og gildir gagnvart því …
Engin keðja er sterkari en veikasti hlekkurinn!
Stéttarfélag Vesturlands auglýsir hér með eftir áhugasömum félagsmönnum til að gegna hinum ýmsu trúnaðarstörfum fyrir félagið. Félaginu er skipt í fimm deildir og hver þeirra hefur sérstaka stjórn. Iðnsveinadeildin hefur þriggja manna stjórn og tvo til vara. Deildir verslunar- og skrifstofufólks, Matvæla, flutninga- og þjónustu, Iðnaðar, mannvirkja- og stóriðju og Deild starfsfólks hjá ríki og sveitarfélögunum hafa fimm manna stjórnir …
Kjarakönnun 2019 – tökum þátt
Tökum vel á móti Gallup Stéttarfélag Vesturlands leitar til félagsmanna sinna og biður þá um að svara könnun um kjör sín, viðhorf og starfsaðstæður. Félagið nýtir könnunina til móta starfsemi sína og til að berjast fyrir bættum kjörum fyrir félagsmenn. Gallup sér um að senda spurningar til um 900 félagsmanna sem eru í úrtaki fyrir könnunina. Farið verður með öll …