Sumarúthlutun lokið – fyrstur kemur fyrstur fær

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Nú er seinni sumarúthlutun lokið og gildir þá fyrstur kemur fyrstur fær en til að festa sér viku þarf að ganga frá greiðslu strax. Vikurnar verða aðgengilegar á orlofshúsavefnum á morgun 24.maí 2016.   Lausar vikur er hægt að sjá hér.       

Við MINNUM á – ertu nokkuð gleyma?

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Þeir félagar sem fengu úthlutað í seinni úthlutun hafa til og með 20.maí til að staðfesta að þeir ætli að taka vikuna sína – 23.maí munu svo liggja fyrir þær vikur sem eru lausar eftir fyrstu og aðra úthlutun og þá gildir fyrstur kemur fyrstur fær.    

Lokað fyrir hádegi 13.maí 2016

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Á morgun 13.maí 2016 verður skrifstofa Stéttarfélags Vesturlands lokuð til kl 13:00 vegna námskeiðs starfsfólks.    

Sumarúthlutun – Seinni úthlutun

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Nú er seinni úthlutun lokið varðandi orlofshúsin fyrir sumarið og þeir sem fengu úthlutað hafa fengið greiðsluseðil í heimabanka og bréf á leiðinni til þeirra í pósti.   Þeir sem ekki fengu úthlutað fá ekki bréf en er bent á að fylgjast með 23.maí því þá verða auglýstar þær vikur sem eftir eru og þá gildir fyrstur kemur fyrstur fær.    

Ertu nokkuð að klúðra sumarfríinu?

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Þeir félagsmenn sem fengu úthlutað sumarbústað í fyrstu umferð þurfa að hafa greitt kröfuna í heimabankanum, fyrir þriðjudaginn 10. maí. Þann dag munum við úthluta þeim vikum sem verða ógreiddar. Þá hafa menn tíma til 23. maí til að greiða eftir aðra úthlutun. Eftir 23. maí gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær vegna þeira vikna sem þá verða eftir.   

Takk fyrir komuna

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Signý María Völundardóttir og Alda Dís sungu báðar eins og englar í Hjálmakletti Við þökkum fyrir komuna á hátíðarhöldin okkar 1.maí bæði í Hjálmakletti og í Búðardal. Við þökkum þeim fyrir sem fram komu, dagskráin var til fyrirmyndar og allir stóðu sig með stakri prýði.   Þá þökkum við einnig nemendum í 9.bekk Grunnskólans í Borgarnesi fyrir veitingarnar sem slógu í gegn. …

Mætum öll á hátíðar og baráttufundi 1.maí!

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Stéttarfélag Vesturlands stendur fyrir hátíðar og báráttufundum í Borgarnesi og Búðardal í samstarfi við Kjöl stéttarfélag  og Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsnessýslu á 1. maí. Hægt er að skoða dagskrána í Hjálmakletti hér og í Dalabúð hér.     Athugið breytta tímasetningu í Borgarnesi en fundurinn hefst kl 11:00!   Minnum einnig á bíó fyrir börnin þar sem myndin Loksins heim …

Sumarúthlutun opnast næst 23.maí nk.

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Þann 20.apríl sl. var síðasti umsóknardagur til að sækja um orlofshús/íbúð í fyrstu og annari úthlutun fyrir sumarið 2016. Næst opnast fyrir umsóknir þann 23.maí nk. en þá verða auglýstar vikur sem ekki gengu út í fyrstu og annari úthlutun.   Þá gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær – endilega fylgist með.    

Síðasti dagur til að sækja um sumarúthlutun er Á MORGUN

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Á morgun 20.apríl er síðasti dagur til að sækja um sumarúthlutun – Hægt er að sækja um með því að ýta á bláa hnappinn hér til hliðar eða skila umsóknarblaði sem fylgdi Félagsfréttum sem komu út í byrjun apríl sl.