Stafir lífeyrissjóður boðar til sjóðfélagafundar í sal Menntaskóla Borgarfjarðar, Borgarbraut 54 í Borgarnesi, fimmtudaginn 14. janúar 2010 kl. 20:00. Guðsteinn Einarsson varaformaður stjórnar Stafa lífeyrissjóðs og Ólafur Sigurðsson framkvæmdastjóri Stafa, fjalla um stöðu og starfssemi sjóðsins og svara fyrirspurnum. Sjóðfélagar eru hvattir til að fjölmenna á fundinn og kynna sér málefni sjóðsins.
Atvinnumál á krepputímum – opinn fundur
Atvinnumálanefnd ASÍ stendur fyrir opnum fundi um atvinnumál á krepputímum, miðvikudaginn 13. janúar, kl. 10:00-15:00 að Sætúni 1 Reykjavík – fundarsal Eflingar 4. hæð. Farið verður yfir reynsluna af núverandi vinnumarkaðsaðgerðum, hvað hefur tekist vel og hvað má betur fara. Einnig verður horft til framtíðar á þau tækifæri sem þar bíða. Fundurinn er opinn öllum þeim sem áhuga hafa. Opnir …
Greiðslur í fæðingarorlofi skerðast
Nú um áramótin tóku gildi breytingar á lögum um fæðingarorlof. Breytingarnar fela í sér að hámark greiðslna úr Fæðingar-orlofssjóði til foreldris lækkar í 300.000 kr. á mánuði. Þá lækkar hlutfall greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði úr 80% í 75% vegna viðmiðunartekna umfram 200.000 kr. á mánuði. Breytingarnar eiga við vegna barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur eftir 1. …
Stéttarfélag Vesturlands sendir hugheilar jólakveðjur
Stéttarfélag Vesturlands sendir öllum félögum sínum hugheilar jóla og nýjársóskir. Félagið sendir sérstakar kveðjur til þeirra sem eiga um sárt að binda, hvort sem er í efnahags- eða félagslegu tilliti. Það er á stundum eins og um jólahátíðina sem menn minnast ástvina sinna og vilja gleðja ættingja og vini, sem tilfinningar eins og missir eða skortur verða hvað sárastar. Stéttarfélag Vesturlands eins og …
Ályktun frá stjórnarfundi: Verjum áunnin réttindi
Eftirfarandi samþykkt var gerð á fundi stjórnar Stéttarfélags Vesturlands, Sæunnargötu 2 í Borgarnesi 7. desember 2009: Stjórn Stéttarfélags Vesturlands skorar á félagsmálaráðherra að draga til baka frumvörp til laga um breytingar á atvinnuleysistryggingum og fæðingarorlofi sem hann hefur lagt fram. Vandi atvinnuleysistryggingasjóðs er ekki skortur á lagaúrræðum heldur skortur á fjármunum og starfsfólki til að fylgja gildandi lögunum …
Stéttarfélag Vesturlands stækkar húsakynni sín
Þrátt fyrir að Alþýðuhúsið sem stendur við Sæunnargötu 2a í Borgarnesi sé ekki gamalt, þá hefur starfsemi félagsins þegar sprengt utan af sér. Ekki eru liðin 5 ár síðan flutt var í húsið, en síðan þá hefur orðið sameining þriggja stéttarfélaga, auk þess sem verkefnum hefur fjölgað. Segja má að þegar ráðist var í byggingu hússins hafi full mikils aðhalds …
¨”Vakna þú mín þyrnirós¨” Hættið að tala – framkvæmið!
Ályktun stjórnar Stéttarfélags Vesturlands. 28. sept. 2009.- Stjórn Stéttarfélags Vesturlands lýsir yfir áhyggjum af aðgerðarleysi stjórnvalda í efnahags- og atvinnumálum. Eilífar illdeilur um keisarans skegg, hvort sem eru innan ríkisstjórnar eða við stjórnarandstöðuna skila engum árangri, draga mátt úr þjóðinni og koma í veg fyrir að menn snúi sér að brýnni verkefnum. Ríkistjórnin þarf að láta verkin tala og …
Allsherjaratkvæðagreiðsla vegna fulltrúa á ársfund ASÍ
Samkv. lögum Stéttarfélags Vesturlands skal viðhafa allsherjar-atkvæðagreiðslu við val fulltrúa á ársfund ASÍ. Félagið á rétt til að senda 4 fulltrúa á fundinn, sem fram fer á Nordica hóteli í Reykjavík dagana 22. og 23. okt. 2009. Framboðslistum, þar sem tilgreindir eru 3 aðalfulltrúar frá SGS-deildunum og 1 frá LÍV-deild og jafnmargir varafulltrúar, ásamt tilskyldum fjölda meðmæla fullgildra félagsmanna, skal …
Atkvæðagreiðslu lýkur föstudaginn 7. ágúst
Nú stendur yfir póstatkvæða-greiðsla vegna kjarasamninga við ríkið og sveitarfélögin. Póstleggja þarf atkvæðaseðla í síðasta lagi 7. ágúst til að þeir nái örugglega í talningu sem fer fram þann 14. ágúst á skrifstofu Starfsgreinasambands Íslands. Stéttarfélag Vesturlands hvetur félagsmenn sína að nýta sér atkvæðisrétt sinn. Á meðfylgjandi mynd eru Gunnar Björnsson formaður samninganefndar ríkisins og Signý Jóhannesdóttir formaður Stétt Vest og …
Samninganefnd ASÍ staðfestir endurskoðun kjarasamninga
Þessi frétt er tekin af vef ASÍ: 13. júlí 2009Fulltrúar landssambanda og félaga með beina aðild að ASÍ hafa í dag tekið afstöðu til samkomulags ASÍ og SA frá 25. júní s.l. eftir að hafa leitað eftir afstöðu samninganefnda sinna aðildarfélaga. Í ljós hefur komið að víðtæk samstaða er innan Alþýðusambands Íslands um bæði niðurstöðu samningsaðila sem og gerð …